Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 31. ágúst 2022 kl. 14:30 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Björn Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson. Vilborg Lárusdóttir boðaði forföll og Þórir Bergmundsson er í veikindaleyfi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 24. ágúst 2022 lögð fram og samþykkt.
- Opnun nýrrar skurðstofu og heimsókn heilbrigðisráðherra.
Fjallað um heimsókn heilbrigðisráðherra sem var fimmtudaginn 25. ágúst s.l.
- Mælaborð um tölfræði liðskipta hjá EL.
Farið yfir nýtt mælaborð um tölfræði liðskipta hjá embætti landlæknis.
Umræða var um fleiri mælaborð og farið yfir nokkur borð á Qlick Sense.
- Læknamál í Borgarnesi og á öðrum heilsugæslustöðvum.
Fjallað um læknamál í Borgarnesi og Ólafsvík næstu vikur. En eins og staðan er í dag þá verður læknalaust næst tvær vikur í Borgarnesi vegna veikindaforfalla, utan þess að tekist hefur að manna vakt um helgarnar. Þá er staðan sú að læknislaust er í Ólafsvík frá næsta sunnudegi í viku.
Fundað var með starfsmönnum í Borgarnesi í gær, þriðjudag um málefnið, unnið er að uppsetningu neyðarplans sem kynnt verður á morgun, fimmtudag.
- Skipunarbréf – Viðbragðsteymi vegna bráðamóttöku í landinu – lagt fram.
Lagt fram skipunarbréf dags. 25. ágúst 2022. Þar kemur fram að Þórður Guðnason hefur verið skipaður í nefndina. 24 aðilar eru í teyminu.
- Matarverð.
Breytingar voru gerðar á matarverð, verðið var fært nær verðum hjá öðrum heilbrigðisstofnunum.
Nýtt verð tekur gildi frá 1. október 2022.
Tegund Verð
Morgunverður 260 kr.
Hádegisverður 600 kr.
Kvöldverður 300 kr.
Salatbar 600 kr.
Samloka 550 kr.
Langloka 650 kr.
Skyr 200 kr.
Ávöxtur 100 kr.
Súpa og eftirréttur 200 kr.
Kökuskammtur 150 kr.
- Fundir framundan
Rætt um fundi framundan:
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:50
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.