Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 14. desember 2022 kl. 9:00.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Björn Gunnarsson, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.   Vilborg Lárusdóttir forfallast vegna veikinda.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 7. desember 2022 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Samkomulag við SÍ um tilvísanir frá heilsugæslum HVE í sálfræðimeðferð hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum, á rammasamningi við SÍ.

Lagt fram samkomulag á milli Sjúkratrygginga Íslands og HVE um tilvísanir í sálfræðimeðferð.   Samkomulagið varðar tilvísanir frá heilsugæslum í umdæmi HVE hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum, á rammasamning við SÍ fyrir börn og unglinga til 18 ára aldurs með kvíðaröskun eða þunglindi og einstaklinga 18 ára og eldri með kvíðaröskun eða þunglyndi af einhverjum toga.

Markmiðið samkomulagsins er að auka aðgengi ungs fólks að sálfræðiþjónustu.

 

  1. Undirritun viljayfirlýsingar við Dalabyggð.

Lögð fram viljayfirlýsing HVE og Dalabyggðar um samþættingu þjónustu við aldraðra í Dalabyggð, dags. 13. desember 2022.   ÞBH fór yfir málið, fyrsti fundurinn verður þann 6. janúar 2023.

Eftirtaldir voru skipaðir í undirbúningshópinn, Þura B. Hreinsdóttir og Þórunn B. Einarsdóttir frá HVE og Þuríður Sigurðarsdóttir og Björn Bjarki Þorsteinsson frá Dalabyggð.

Viljayfirlýsingin er svohljóðandi:

 

Á grundvelli neðan greinds gera Dalabyggð, kt. 510694-2019, og Heilbrigðisstofnun Vesturlands, hér eftir kallað HVE, kt. 630909-0740, með sér viljayfirlýsingu um að kanna grundvöll þess að hefja undirbúning að samþættingu þjónustu við aldraða í Dalabyggð. Aðilar tilnefna hvor um sig tvo aðila til þess að vera í undirbúningshóp sem hefja mun störf um áramót og skila skal af sér tillögu að frekara skipulagi þessa samstarfsverkefnis fyrir lok apríl 2023. Um verði að ræða tilraunaverkefni sem kynnt verði heilbrigðisráðherra og heilbrigðisráðuneyti og jafnframt leitað stuðnings frá fagráðuneytinu þessum áformum til stuðnings.

 

Þjónusta við aldraða á Íslandi er á höndum bæði ríkis og sveitarfélaga. Ríkið sér öldruðum fyrir heilsugæslu og sinnir heimahjúkrun. Sveitarfélög sjá fólki fyrir félagslegri heimaþjónustu og reka mörg hver hjúkrunar- og dvalarheimili líkt og Dalabyggð gerir með rekstri Silfurtúns. Rekstur hjúkrunar- og dvalarheimila er þannig uppbyggður að ríkissjóður greiðir daggjöld til stofnana sem reka hjúkrunar- og dvalarrými, óháð rekstrarformi, samkvæmt metinni þörf fyrir rýmafjölda í hverju heilbrigðisumdæmi.

 

Þær kannanir sem gerðar hafa verið á viðhorfi aldraðra sýna að þeir óska í flestum tilfellum að dvelja á eigin heimili til æviloka ef heilsa leyfir. Umræðan um sjálfræði aldraðra og einstaklingsmiðaða þjónustu við þennan þjóðfélagshóp verður sífellt meiri. Ljóst er að á næstu árum mun öldruðum fjölga hlutfallslega hraðar en öðrum þjóðfélagshópum vegna hækkandi lífaldurs og lækkandi fæðingartíðni. Markmið þessarar viljayfirlýsingar er fyrst og fremst að skapa grundvöll að sem skilvirkastri sem og hagkvæmastri öldrunarþjónustu í Dalabyggð og nærsveitum árið um kring, alla daga ársins. Einnig að brúa bil milli þjónustuaðila því nánari samvinna mun stuðla að heildstæðari þjónustu sem ætti að fækka „gráum svæðum“ og mögulegum hindrunum í kerfinu.“

 

  1. Skoðun á eflingu bráðamóttöku á HVE Akranesi

Fjallað um skoðun á eflingu á bráðamóttöku á HVE Akranesi.  En unnið er að skipulagi á eflingu á bráðamóttöku á Akranesi ásamt skipulagi á öllum heilsugæslum.

Fram kom að nú þegar hafi borist 34 m.kr. fjárveiting til tækjakaupa.

 

  1. Þjónustukönnun heilsugæslustöðva á landsbyggðinni

Farið yfir þjónustukönnun heilsugæslustöðva á landsbyggðinni á vegum Sjúkratrygginga.

  1. Mannauðsmál.

JFJ ræddi um mannauðsmál, sérstaklega skipulag starfa deildarstjóra heilbrigðisgagnadeildar og verkefnisstjóra. Lagði fram drög að starfslýsingu skjala- og upplýsingastjóra sem verið er að skoða. Þá var rætt um stöðu gæða- og öryggisstjóra sem þörf er á.

Nánar rætt á næsta fundi.

  1. Tölfræðiupplýsingar.

Farið yfir ýmsa tölfræði, bæði í qlik og á vef Landlæknis.

  1. Fundur með stjórnendum á Kvennadeild.

Á næsta fundi verður farið yfir efni fundar með stjórnendum á Kvennadeild.

  1. Samstarf framhaldskólanna á starfsvæðinu og HVE.

RM fjallaði um mögulegt samstarf á milli HVE og framhaldskólanna. En fram kom að núna væri það einungis Fjölbrautarskóli Vesturlands með slíkt samstarf. Fram kom að HVE hafi veitt ákveðna þjónustu í skólanum í Borgarnesi en hafi verð lögð niður vegna lélegrar nýtingar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.