Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn og umsjónarmönnum staða, miðvikudaginn 25. janúar 2023 kl. 9:00.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Vilborg Lárusdóttir, Rósa Marinósdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Jóhann Björn Arngrímsson, Viktoría Sif Viðarsdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir og Dagný Ósk Guðlaugsdóttir.
Dagskrá.
- Rekstararáætlun 2023
Fjallað um rekstraráætlun árið 2023.
- Undirbúningur að verkefni um endurskoðun á skipuriti og framtíðarfyrirkomulagi heilsugæsluþjónustu HVE
JFJ fór yfir málefnið, ræddi um skýrslu um bráðaþjónustu á landinu ásamt verkefni sem farið er að stað um framtíðar fyrirkomlag á heilsugæsluþjónustu HVE.
Fram kom hjá JFJ að byrjað væri á fundi með stjórnendum heilsugæslustöðva þann 15. febrúar 2023 á hótel Hamri. Þar munu ráðgjafar Stratigíu stjórna fundinum, einnig mun Jón Magnússon bráðalæknir koma og kynna skýrsluna um bráðaþjónustu á landinu. Eftir þetta munu verða skipulagðir fundir með stjórnendum á nokkrum svæðum, þá mun einnig verða fundað með hagaðilum, t.d. sveitastjórnum. Þá verður unnið að endurskoðun á skipuriti HVE.
- Upplýsingar frá starfsstöðvum.
Farið var yfir upplýsingar á starfsstöðvum.
Hvammstangi: AOJ sagði starfið ganga almennt vel. Kom fram hjá henni að þann 21. febrúar verður skyndihjálparnámskeið á staðnum.
Grundarfjörður: DÓG sagði frá mönnuninni. Þá sagði hún að læknisþjónusta hafi verði stopul undanfarið, væri mjög bagalegt.
Stykkishólmur: HF sagði lítið að frétta. Væri mikið í umræðinni hvenær dvalarheimilið kemur inn í húsið.
Búðardalur: JBA sagði starfið ganga vel þar, allt í mestu rólegheitum.
Hólmavík: JBA sagði starfið ganga vel þar og allt í rólegheitum, þó fyrir utan aðeins veikindi hjá starfsfólki.
Borgarnes: RM sagði starfið ganga ágætlega, allt bara góðar fréttir. Fram kom hjá henni að vel hafi gengið hjá Hildigunni að manna stöðina.
Ólafsvík: VSF sagði það væri búið að vera erfitt undanfarið vegna læknaskorts. Sagði að það væru þó betri tímar framundan í læknisþjónustu og jafnframt hjá hjúkrunarfræðingum.
Fram kom hjá ÁÁ að frá 1. mars verði búið að loka viðveru læknis í Ólafsvík í 25 daga pr. mánuð, utan þann tíma verður allvega boðið upp á fjarlækni. Þessa viku er einn læknir með símatíma og annar með vaktina.
Umræða var um skipulag á orlofi.
VL sagði frá skyndihjálparnámskeiðum sem boðið verði á öllum stöðum, en dagsetningar liggja ekki fyrir, verður klárað fyrir sumarið. Er á leið í fæðingarorlof í maí, sagði að Sigurður Þór Sigursteinsson muni leysa hana af á meðan.
ÞB. Fram kom að mönnun væri þröng meðal lækna á heilsugæslunni. Unnið er að ráðningu á bæklunarlækni og kvensjúkdómalækni. Nefndi hve læknamönnunn í Borgarnesi væri orðin góð eins og er og liti vel út. Fjallaði um Ólafsvík, eins og fram kom hér að ofan. Sagði aðeins 22 af 52 vikum í Grunarfirði vera skipulagðar eins og er, þá aðalega til vors, gengur illa að fá lækna. Mönnun hefur að fullu verið skipulögð í Stykkishólmi, sama má segja um Hólmavík og Búðardal. Ræddi um Hvammstanga að auki.
ÞBH sagðist finna langþreytu í starfsmönnum, erfitt að fá fólk til vinnu. Sagði að augljóslega þurfi að reyna að fá starfsmenn til að finna starfsgleðina.
- Vefur HVE, staðan
JFJ sagði frá nýjum vef HVE, en verið er að flytja vefinn undir island.is stafrænt Ísland. Fram kom að stefnt væri að setja upp vefinn í því ljósi reyna fækka símtölum inn í húsið. Rætt um tímabókanir.
- Fagráð.
JFJ sagði frá því að Patryk í Ólafsvík hafi sagðt sig úr fagráði. Þorvaldur Hjaltason sjúkraflutningamaður bauð sig fram í fagráðið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:34.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.