Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 1. apríl 2026 kl. 9:00 

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.  

 

Dagskrá. 

 

1. Samþykkt síðustu fundargerðar.  

Fundargerð frá 25. mars 2026 lögð fram og samþykkt.  

 

2. Fjármál og rekstur. 

Fjallað um fjármál og rekstur.  

Viðbótarfjármagn að fjármagn hefur fengist vegna iðjuþjálfa í heimaþjónustu. 

 

3. Lyfjagjafir á göngudeild – fyrirspurn frá Landspítala. 

JFJ sagði frá fyrirspurn frá Landspítala um hvort HVE gæti tekið við fleiri sjúklingum til lyfjagjafar á göngudeild vegna vaxandi fjölda einstaklinga frá okkar svæði sem eru að fá ýmis líftæknilyf og krabbameinslyf á Landspítala. 

Framkvæmdastjórn tekur jákvætt í málið og sem verður skoðað frekar þegar formlegt erindi berst vegna málsins.     

 

4. Sérstök fjárveiting 2026 til menntunar starfsfólks í sjúkraflutningum.  

JFJ sagði frá sérstakri fjárveitingu til menntunar starfsfólks í sjúkraflutningum sem hægt er að sækja um til HRN.  

Rætt um málefnið sem verður skoðað frekar.  

 

5. Umbótaverkefni HRN til að auka aðgengi, skilvirkni og gæði heilsugæsluþjónustu.  

Lögð fram samantekt HRN varðandi umbótaverkefni í heilsugæsluþjónustu 2026. 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:10 

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.