Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 6. febrúar 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Linda Kristjánsdóttir og Rósa Marinósdóttir sátu fundinn um fjarfundabúnað.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerðir frá fundum 23. janúar og 30. janúar 2019 lagðar fram og samþykktar.
- Málefni lyfjabúrs HVE.
ÞB fjallaði um málefni lyfjabúrs HVE, en fram kom hjá honum að lyfjafræðingur vildi breyta lyfjabúri í formlegt apótek. Þá kom fram álit lyfjafræðings að þörf sé á aukningu á stöðu lyfjafræðings.
Rætt um málið, en fundarmenn voru sammála um að í raun þyrfti 100% stöðu, enda væri alltaf verið að bæta við ýmsa umsýslu lyfja, m.a. vegna eftirlits og annarra kerfa.
- Samráðsfundur 18. febrúar um notkun á InterRAI mælitækjum og framkvæmt við færni- og heilsumat.
JFJ fjallað um samráðsfund sem haldinn verður þann 18. febrúar um notkun InterRAI með Landlæknisembættinu og Heilbrigðisráðuneytinu. Samþykkt að RM fari á fundinn.
Rætt um málefnið. Fram kom í máli RM að kerfið þyki fremur þungt og tímafrekt í notkun.
- Fundur 8. febrúar um fyrirhugað biðlistaátak 2019.
Rætt um væntanlegan fund í heilbrigðisráðuneyti þann 8. febrúar n.k. um fyrirhugað biðlistaátak árið 2019 vegna langra biðlista. Fram kom að á árinu 2018 voru gerðar 82 biðlistaaðgerðir. Af 163 liðskiptaaðgerðum falla 53 undir átak og af 109 legnámsaðgerðum falla 29 undir átak. Gert er ráð fyrir að á næsta ári muni vera mögulegt að gera 70 liðskiptaaðgerðir og 35 kvensjúkdómaaðgerðir vegna átaks. Þá var umræða um hvort einhverjar aðrar aðgerðir gætu mögulega fallið undir biðlistaaðgerðir.
Fram kom að ÞB og ÁÁ muni sækja fundinn þann 8. febrúar.
- Mannauðsmál.
Rætt um læknamönnun í Borgarnesi, en unnið er að málefnum þar. Þá kom fram að LK og Jóhannes Bergsveinsson hafi fundað um sérnámsstöður í Borgarnesi og á Akranesi. Ákveðið hafi verið að auglýsa tvær stöður í vor.
Rætt um skipun forstjóra, en skipun rann út þann 31. janúar s.l.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:51.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.