Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 18. september 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 21. ágúst 2019 lögð fram og samþykkt.
- Upplýsingar frá fundi í heilbrigðisráðuneyti 17.september.
JFJ og ÁÁ fjölluðu um fund sem þau áttu með embættismönnum heilbrigðisráðuneytis þann 17. september. Málefni fundarins var eftirfarandi:
- Helstu þættir í starfsemi stofnunar:
- Aðgengi að þjónustu
- Fjöldi legurýma
- Fjármál
- Áætlanagerð: Rekstar- og starfsáætlun 2020 og tengin við heilbrigðisstefnu
- Önnur mál
- Fjárhagsleg málefni.
ÁÁ lagði fram rekstaryfirlit fyrir tímabilin janúar til júní 2019 annars vegar og janúar til ágúst 2019 hinsvegar ásamt rekstrarspá fyrir allt árið 2019. Umræða var um launakostnað sem er komin umtalsvert fram úr áætlun, sérstaklega vegna yfirvinnu. Rætt um hvernig hægt verði að bregðast við þessari þróun sem m.a. hefur komið fram vegna aukinni veikinda starfsmanna.
Þá var fjallað um frumvarp til fjárlaga næsta árs, samkvæmt fyrstu skoðun á frumvarpi má gera ráð fyrir að það vanti um 150 m.kr. til að halda óbreyttri starfsemi og rekstri.
- Fjármagnslíkan heilsugæslu – framvinda
Rætt um fjármagnslíkan heilsugæslu og framvindu.
- Biðdeild, stutt framlenging verkefnis.
Umræða um rekstur biðdeildar, fram kom að fyrirhugað tímabundnum rekstri deildarinnar muni að öllum líkindum ljúka þann 29. febrúar 2020. Deildin var opnuð vorið 2017 og átti upprunarlega að vera starfandi út árið 2018. Fram kom að þrátt fyrir að fjöldi sjúklinga hafi að jafnaði verið nægur þá dugi daggjöldin ekki til þessa að tryggja rekstur deildarinnar að fullu.
- Liðskiptaaðgerðir.
Rætt um liðskiptaaðgerðir til framtíðar, en fyrirhugað er að bæta við 2 aðgerðum á viku nú í október. Þá var rætt um viðræður við heilbrigðisráðuneytið um möguleika á því að setja upp sérstaka liðskiptadeild á HVE sem myndi anna umtalsvert fleiri aðgerðum en gert er hér nú. Fundað verður sérstaklega með ráðuneytinu í lok september vegna málsins, rætt um að HVE myndi leggja fram drög að áætlun vegna þessa, þ.m.t. vegna stofnkostnaðar við uppsetningu á viðbótar skurðstofu.
- Heilsugæsla á Snæfellsnesi.
Fjallað um samstarf heilsugæslunnar á Snæfellsnesi.
Samþykkt að JFJ og ÁÁ fari á staðina fimmtudaginn 26. september til fundar með starfsmönnum vegna málsins.
- Röntgentæki og búnaður.
Staða útboðs og tilboða röntgentækja rædd, fram kom að tilboðin eru enn í skoðun. Það voru þrjú tæki sem bjóðast. Rætt var um tækjabúnað á öðrum deildum, t.d. tæki á fæðingadeild.
Fjallað almennt um búnaðar- og tækjalista frá deildum.
- Áskrift að UpToDate, endurnýjun.
Samþykkt að halda áfram með áskriftina.
- Innsend samantekt deildarstjóra handlækningadeildar vegna sameiningar B- og C-deildar í sumar.
Lögð fram og rædd samantekt deildarstjóra handlækningadeildar vegna sameiningar b- og c-deildar í sumar.
Umræða var um málefnið.
- Mannauðsmál.
Umræða var um heimsókn og kynningu fyrir kandídata. Þá komu sérnámslæknar í heilsugæslunni í heimsókn til kynningar. Læknamönnun á heilsugæslu í heild er með betra móti en oft hefur verið.
Rætt um mönnun hjúkrunarfræðina á heilsugæslunni.
Komin hefur ein umsókn ljósmóður á kvennadeild og horfur eru betri núna með mönnun á deildinni en var.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:50
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.