Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 25. október 2017 kl. 10:00

Mættir: Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Á fundinn komu svæðisfulltrúar: Hafdís Bjarnadóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Sigrún Erla Sveinsdóttir og Jóhann Björn Arngrímsson.

Jóhanna hóf fundinn á að kynna nýjan starfsmannavef HVE sem hafði verið opnaður þann 24. október.

Rekstur árið 2017 og áætlun 2018.
ÁÁ kynnti rekstrarspá fyrir árið 2017 og drög að áætlun fyrir árið 2018. Fram kom að skv. spá er gert ráð fyrir um 20 m.kr. halla árið 2017 og áætlun 2018 gefur til kynna að halli það ár verði um 81 millj. króna sem jafngildir í raun niðurskurði fyrir um 2 % á næsta ári ef fjárlagarammi breytist ekki.
Rætt ítarlega um málið.

Óskað eftir að fundarmenn fari vel yfir starfsemi og þjónustu á sínum stöðum og skoði hvar helst hægt er að hagræða til að koma til móts við niðurskurð í samræmi við fjárlög.

Starfsáætlun og stefnumótun.
JFJ kynnti stefnu- og starfsáætlun til þriggja ára í samræmi við 31. gr. laga um opinber fjármál.

Sjá nánar:
https://www.stjornarradid.is/gogn/stefnur-og-aaetlanir/opinber-fjarmal/heilbrigdisthjonusta-utan-sjukrahusa/
https://www.stjornarradid.is/gogn/stefnur-og-aaetlanir/opinber-fjarmal/hjukrunar-og-endurhaefingarthjonusta/

Starfsemistölur.
Lagðar fram og fjallað um starfsemistölur vegna ársins 2017.

Framsal valds.
JFJ fjallaði um framsal valds. En samkvæmt formi stjórnsýslunnar þarf að endurskoða uppsetningu á framsali valds.

Öryggsnefndir.
Rætt um öryggisnefndir, öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði. Þá hafa verið starfandi þrjár nefndir, Akranesi, Hvammstanga og Stykkishólmi. Unnið verður að því að sett verði upp ein öryggisnefnd í stað þriggja fyrir HVE í heild sinni.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:50

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.