Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 29. september 2021 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerðir frá 8. september og 15. september 2021 lagðar fram og samþykktar.
- COVID, staðan
Fjallað um covid stöðuna núna, fram kom hjá ÞB að í dag voru á Vesturlandi auk Hvammstanga og Hólmavíkur (HVE svæðið) alls 10 í einangrun og 16 voru í sóttkví. Yfir landið allt voru (kl. 08.00) 355 í einangrun, 855 í sóttkví, 9 á sjúkrahúsi og 1 á gjörgæslu. Daglegur fjöldi virkra smita á landinu hefur haldist svipaður sl. 2 vikur, 300-400. Af þessum 355 sem eru í einangrun eru 99 á aldrinum 6 til 12 ára.
Rætt var um hraðpróf sem FVA er að taka af nemendum sínum vegna dansleiks sem halda á nú í vikunni.
Samþykkt að stefna að því að frá og með 30. september verði ekki almenn grímuskylda, hún eigi þó við í biðstofum og í öllum samskiptum og meðferð sjúklinga ef fjarlægðamörk eru ekki tryggð. Þessi breyting á við eins og staðan er eins og hún er í dag, getur því tekið breytingum.
Gerður var samningur við ritari.is um 2 starfsmenn sem kom að sýnatökum alla daga. Gildistíminn er til 31. desember 2021.
- Framkvæmdir
JFJ fór yfir stöðu mála er lúta að framkvæmdum.
- Fundur með starfsmönnum HVE í Stykkishólmi 23. september
JFJ fjallaði um fund sinn með starfsmönnum HVE í Stykkishólmi þann 23. september s.l. vegna flutnings hjúkrunarrýma sem Stykkishólmsbær hefur rekið til þessa. Unnið er að gerð samnings og útfærslu á tilfærslu starfsmanna.
- Hugbúnaður frá Origo (Smásaga, Gjafaskráning í Sögu og eMed lyfjafyrirmæli)
Lagt fram tilboð í hugbúnað frá Origo, smásögu fyrir heimahjúkrun og lyfjafyrirmælakerfi fyrir legudeildir.
Samþykkt að hefja innleiðingu á smásögu fyrir heimahjúkrun hið fyrsta.
Fyrirhuguð er að fá frekari kynningu á lyfjafyrirmælakerfum, ákvörðun um verður því tekin síðar.
- Fjármagn úr Byggðaáætlun – efling fjarheilbrigðisþjónustu
Rætt um fjármagn úr Byggðaáætlun til eflingar á fjarheilbrigðsþjónustu.
Samþykkt að skoða möguleika í þessum sambandi. JFJ kynnti lítilega fjarbúnaðinn Agnes, Motiview, Memaxi, DigiRehab og CareOn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:10
Ásgeir Á. ritaði fundargerð